Fréttir

Miðengi
Fréttir 11
Frettir 10
Fréttir 09
Fréttir 08
Fréttir 07
Fréttir 06
Fréttir 05
Fréttir 04
Fréttir 03

 

 

 

3. feb 2012

           Búið að vera rosalega gott veður í dag, ég meira að segja kýkti með skeljasand til hænsna, kýkti í smá kaffi til Lindu, fór í hesthúsið og fjárhúsið bara svona kýkti aðeins við í þessum húsum.  Dóri orðinn mikið betri í löppinni sem betur fer, nú og Sigga og Arnar skelltu sér á hestbak í dag enda svosem veðrið til þess.   Annars bara rólegheit.  Heilmikið svo í gangi á morgun svona ef ég nenni en það er hvolpafjör í borg óttans og ég er að velta fyrir mér hvort ég skelli mér suður með Láru og Gunnu, en það kemur bara í ljós á morgun. 

2. feb 2012

         Fór með Dóra í Laugarás eftir hádegið en hann er að drepast í hnénu, varð fyrir hnjaski í íþróttum í gær.    Skildist að hann væri tognaður allavega ekki brotin og tæplega rifin en þó á hann að mæta aftur til Gylfa  næsta miðvikudag svona til að vera alveg viss.   Hann á semsagt að taka því rólega um helgina og ekkert á hestbak svo er bara að krossa fingur og vona að hann verði orðin alveg sprækur eftir helgina.  Dóri, Bjarki, Kjartan og Hjalti fóru svo í Ölfushöllina í kvöld að horfa á Meistaradeildina en það er skyldumæting hjá Dóra en þetta er inní hestabrautarnáminu , hann hefði nú farið hvort sem var en við sóttum Bjarka og Hjalta á Selfoss í dag því Dóri eginlega ekki ökufær og fékk því Bjarka til að keyra.  Vonandi verður hann bara orðinn nógu góður til að keyra í skólann í fyrramálið.

1. feb 2012

         Fór á Selfoss eftir hádegið það er alltaf eitthvað sem maður þarf að snúast.  Kjartan kýkti hér við í dag og járnaðir fyrir hana Siggu held ég.  Nú Sigga fór svo á hestbak en nú ætla krakkarnir að fara að taka á því og hreyfa hrossin meira, sem er bara hið besta mál.  Sigga fór svo í Zumba í kvöld og strákarnir á fótboltaæfinu, Dóri var nú frekar haltur þegar hann kom heim úr skólanum og ekki lagaðist það við það að fara á æfingu.   Annars bara allt við það sama, allt hvítt úti en samt enginn snjór að ráði.  Það væri fínt ef þetta gæti bara verið svona fram á vor og engin úrkoma að ráði nóg komið að því.

       Hlustaði á fjarfund á netinu í kvöld en það var fundur um nýja lyfið sem heitir Gilenya, ég er nú orðin nokkuð viss um að ég fái ekki það lyf nú svo virkar það víst ekki eins vel og Tysabri, en það eru víst bara örfáir útvaldir sem komast á Gilenya en það eru þeir sem eru jákvæðir gagnvart JC vírus nú og ér er það svosem en þeir sem fá lyfið þurfa líka að hafa verið á ómæmisbælandi lyfjum áður eins og krabbameinslyfjum og ég hef nú sem betur fer ekki verið á þannig lyfjum en þetta fólk semsagt er í mestri hættu á að fá heilabólgu.  Nú þeir sem fá nýja lyfið þurfa svo að hafa fengið hlaupabólu eða verða bólusettir við henni en ég er svosem búin að fá hlaupabólu en ég verð bara áfram á Tysabri og held að ég sé bara nokkuð sátt. 

31. jan 2012

         Ég fór með Dóra og Perlu á Selfoss í morgun og fékk afmæliskaffi hjá Bjarka um klukkan átta í morgun,  en Bjarki er 22ja ára í dag til hamingju með daginn þinn.  Fór svo í bæinn í Tysabri það gekk vel að vanda nú og þar sem ég var svo snemma á ferð í bæinn þá slapp ég snemma heim, fór reyndar í Hagkaup en var komin á Selfoss þegar Perla var búin í skólanum um hálfþrjú leitið.  Gunni Har kýkti svo hér í kaffi.  Nú og svo er Diddi búinn að setja nýjar felgur undir bílinn hennar Siggu ekkert smá flottar felgur og ég ætla bara rétt að vona að nú fari þetta dekkjastand að vera til friðs. 

30. jan 2012

          Fór um hádegið út á Borg,byrjaði að kýkja út í skóla með slatta af gömlum dagatölum sem krakkarnir vilja kannski föndra úr nú og ef ekki þá fer þetta bara í gáminn.  Kýkti svo út í félagsheimili að athuga með slæði sum vantar eftir þorrablót en hún var ekki þar.  Nú svo var það sjoppan en Diddi var með felgu sem var mátuð á Audi, og hún passaði ekki en með því að setja eitthvert milli....eitthvað þá ætti þetta að virka.  Svo stefnan er tekin á að gærja þetta á morgun.

          Sigga kom svo við hér heima í kvöld en hún er að fara í Zumba, og á morgun fer ég í bæinn í Tysabri,  Sigga er með bílinn minn svo ég fæ bara far með Dóra og Perlu á Selfoss fyrir átta í fyrramálið og fer svo í bæinn en Arnar er að fara að vinna í bænum svo hann fer með mér suður. 

           Dóri og Perla fóru svo í bæinn eftir skóla að kýkja á litlu systurdóttur hennar Perlu en hún fæddist núna fyrir helgi, ég er búin að sjá myndir og hún er bara yndisleg :) 

29. jan 2012

         Frábær helgi á enda.  Orðið hálftómlegt í kotinu, Kjartan Gunnar fór þegar Guðni Reynir fór í vinnu í morgun, Freydís fór svo um hádegið, Sigga, Arnar, Bjarki og Hjalti Pétur fóru svo eftir hádegið.  En Guðni Reynir, Dóri og Perla eru svosem ennþá heima svo það er nú ekki alveg tómt kotið en samt helmingi færra fólk en vaknaði hér í morgun og rúmlega það.   Perla tók sig svo til og sópaði hér allt úr úr bara myndarleg nú og þvottavélin fær svosem að snúast líka þannig að þó að ég nenni ekkert að gera þá gerist nú eitthvað samt.  Gunni Har kom svo hér í kaffi í dag.

28. jan 2012

         Annar í þorra skollinn á ég byrjaði á að græja kjúklingasúpu fyrir kvöldið svo var farið í morgunmat til Lindu, hafragrautur og lýsi, flatkökur, brauð og álegg ekki leiðinlegt það.   Þetta var rosalega gaman að velju, mikið stuð og allir kátir.  Seinnipartinn fór svo hluti af mannskapnum út í hesthús og hluti af því fólki á hestbak.  Her var svo um 25 manns í kjúklingasúpu en held að það hafi flestir verið mættir í mat um sex leitið.    Uppúr átta held ég að flestir hafi verið komnir til síns heima, búnir að borða, syngja í Singstar og hlusta á Quinn tónleika og að sjálfsögðu allt í botni.  Frábær þorrahelgi að baki takk fyrir alla skemmtunina, bæði á blótinu og ekki síður hér heima.  Botnakeppni á báðum stöðum og ekki orð um það meir.... ;)

        Þóra Beta fór svo heim uppúr hádeginu en hún fékk far með Steinari og Rakel á Selfoss en Rakel var að fara að vinna og Þóra að fara í afmæli uppá skaga. 

27. jan 2012

           Fór í morgun í klippinu og strípur, veðrið bara svona þokkalegt, en farið að rigna ansi vel.  Heyrði svo í útvarpinu að það væri búið að loka Hellisheiðinni og Þrengslunum.  Þóra ætlaði að koma með rútunni austur þannig að þetta vera ekki alveg að gera sig komst svo að því að Sverrir hafði farið í skólann svo hann tók Þóru með austur en þau komu bara Mosfellsheiðina og voru enga stund sagði Þóra svo ég spurði hana hvenær hún hefi lagt af stað og það var um tvö leitið en klukkan var að verða fimm þegar hún kom heim en þetta hefur nú tosast hægt en hafðist nú samt.

          Nú svo var rúta á þorrablótið en það var bara rosalega gaman.  Hún Perla okkar vann vísubotnakeppnina þvílíkur snillingur verst að ég á ekki mynd af henni þegar hún tók við verðlaununum en hún fékk flotta skál fulla af ávöxtum bara glæsilegt.  Held að við höfum verið að koma heim um fjögur leitið og allir beint í bælið enda annar í þorra á morgun, reyndar voru krakkarnir að útbúa sér eitthvað að borða þegar ég fór að sofa sem er jú bara gott.

26. jan 2012

            Mikið búið að skafa í dag, og skaflar út um allt.  FSu var aflýst í dag og mikið kátir krakkar hér á bæ með það.    Guðni Reynir fór af stað í vinnu en komst ekki nema niðurundir Selfoss og lenti þá útaf, mjög blint svo hann kom bara aftur heim og fór svo um miðjann daginn og kýkti á svínin  en allt var í góðu þar.  Um hádegið í blinbyl komu hér útlendingar og voru að velta fyrir sér að komast á hestbak....ekki alveg í lagi með þá held ég. 
          Gunni Har kýkti hér svo seinnipartinn en hann var að ná sér í eins og einn hrútshaus en restin af hrútnum er fyrir tófuna svo er bara að sjá hvort einhver fæst til að skjóta tófuna.
          Sigga og Arnar komu svo heim seinnipartinn en nú er semsagt farið að styttast í þorrablótið, Þóra kemur svo í fyrramálið en nú fer þetta að skella á :)

25. jan 2012

          Krakkarnir fóru í skólann í morgun það var rutt hér heim fyrir klukkan átta í morgun.  Svo er bara búið að snjóa hér í allann dag næstum.  Sigga kom heim í dag en fer svo aftur á Selfoss í kvöld, þau ætla svo að versla fyrir mig á morgun og koma svo heim sem er voða gott því þá þarf ég ekki að fara á Selfoss á morgun.  Nú það er kominn ótrúlega mikill snjór hér svo Sigga er bara á Raminum enda á meðan hún snýst í kringum mig þarf ég ekki að fara og versla :) fer svo bara á Selfoss á föstudaginn í klippinu og strípur já og að sækja hana Þóru á rútuna.

        Annars er spáin ekki spennandi framundan, snjókoma og skafrenningur í nótt svo það kemur bara í ljós hvort það verður fært í skólann á morgun. 

24. jan 2012

          Mikið stúss á mér í dag, byrjaði á að fara uppí Laugarás í morgun í B12 sprautuna mín.  Var að koma heim um hádegið en þá voru þeir Tintron og Hvati nýfarnir af stað suður en þeir eiga flug á morgun til Belgíu.  
        Eftir hádegið fórum við Perla svo á Selfoss, Perla í neglu og ég fór í Bónus og á Engjó,  bíllinn hennar Siggu var að stríða henni en annað framdekkið var farið að leka og þau á leið í bæinn svo ég skipti um bíl við þau og þau fóru á Raminum í bæinn en ég tók Audi.    Við Perla kýktum svo á útsölu og ekkert smá flott útsala, 70% afsláttur af öllu ekki slæmt það.  Við vorum svo komnar heim um kaffileitið en þá passaði að Lára kom hér og tók okkur Gaur með á Selfoss en hann var að fara í sína sprautu og gekk bara vel.  Sigga og Arnar kýktu svo við hér í kvöld og fengu Gaurinn lánaðann með sér á Selfoss ætla passa hann og skila honum á morgun, bæði Gaurinn og krakkarnir hafa gott af því.  Spurning hvort þau skila honum nokkuð aftur.....
 

23. jan 2012

           Mikið að spá í þessa lyfjagjöf mína. Ég veit hvað ég hef en svosem ekki hvað maður fær ef ég færi úr úr  nýja lyfinu ef það fæst þá samþykkt.

         Nýja lyfið sem heitir Gilenya og fæst ekki leyfi fyrir ennþá er í pilluformi og ein pilla á dag og maður þarf að vara á sjúkrahúsi í allavega sex tíma já eða sólahring þar sem það hægist svo á hjartslættinum, já það er víst betra að fylgjast með því hvort dælan stoppar.  Mér skilst að það séu ekki eins alvarlegar aukaverkanir af Gilenya.

 

         Tysabri:                                                                           Gilenya:

           Lyfjagjöf í æð uppá spítala 1x í mánuði                     Pilla tekin 1x á dag, ca fyrsta sólahringinn á spítala og svo ekki meir
         Er á Tysabri og bara nokkuð sátt                              Ekki komið samþykki hér heima fyrir þessu lyfi
         Hætta á alvarlegum aukaverkunum, heilabólgu           Ekki eins alvarlegar aukaverkanir

         Mér skilst að ástæðan fyrir því að Gilenya er ekki samþykkt hér heima sé af því að það sé svo dýrt.  Svo ég kýkti á síðu lyfjastofnunnar og bar þetta saman.  Tysabri á fjögra vikna fresti í ár sem gera 13 skipti gera 3.916.770.- kr + að lyfið er gefið á sjúkrahúsi.  Ansi dýrt og mér datt bara ekki í hug að það væri hægt að fá dýrara lyf, en viti menn Gilenya kostar 4.844.164.- kr á ársgrundvelli, þannig að það er mikið dýrara en auðvitað kostar að gefa Tysabri uppá spítala, svo kannsi er þetta sambærilegt veit að bara ekki.    En ég þarf svosem ekkert að vera að velta þessu fyrir mér á meðan Gilenya er ekki samþykkt, svo líklega verð ég bara áfram á Tysabri þrátt fyrir að ég hafi verið jákvæði gagnvart eitthverjum vírus sem er semsagt neikvætt því þá er meiri hætta á heilabólgu. 

      Annars er bara komin niðurtalning í þorrablót bara gaman. 

22. jan 2012

          Það snjóaði dálítið í dag.  Ég kýkti aðeins út í hesthús og fjárhús.  Páll Imsland kom svo við í dag og tók slatta af myndum og nú var viðfangsefnið hann Undramundur já og nokkrar mórauðar skjátur.  Voandi náði hann bara fínum myndum.

       Annars er bara allt í rólegheitum eins og alltaf.

       

21. jan 2012

          Rosalega fínt veður í dag, en dálítið kalt.   Eftir hádegið kom hann Flemming og kýkti á hrossin sín.  Svo kom Einar vinnuveitandi hans Guðna hér með fimm hross í fóðrun, og Skarphéðinn með eitt merfolald þannig að það er nóg að gera.   Karlarnir fóru svo út að Hömrum í dag að kýkja á Auði og Sigga.

        Stofnaði svo á Facebook svona Ólafíu ömmu hóp en það stendur til að hafa ættarmót sumarið 2013 svo það er bara vit að fara að halda utan um hópinn.  Sá svo líka á Facebook að það bættist í hópinn lítill drengur í dag úti Noregi en hún Mæja var að fá ömmugull. Hann hefur fengið nafnið Baldur.   Til hamingju með litla drenginn ykkar kæra fjölskylda. 

20. jan 2012

          Lítið að frétta svosem en enn og aftur búin að uppfæra niðjatalið hennar Ólafíu ömmu og færði til bókar að það er fædd lítil stúlka hjá honum Pétri Ben til hamingju með það en hún fæddist 17 janúar.

         Dóri, Perla, Guðni Reynir, Steinar og Rakel eru svo að spila og allt í rólegheitum. 

19. jan 2012

            Fórum að leita að fé í dag en vorum búin að frétta af tvílembu á mótsvið Mjóanes sem stefndi á mikilli ferð hér niður úr.  Kýktum við fjárhúsið á Efri Brú, í kringum Kaldárhöfðann en fundum ekkert kýktum þá aðeins inní þjóðgarð en þar hafið sést til tveggja kinda en við fundum ekkert það sáust ekki einusinni för eftir þær bara eftir tófurnar.

         Fór svo á Selfoss eftir hádegið en afruglarinn var í eitthverju rugli en það er allt komið í fínt lag núna.  Nú á meðan ég skaust á Selfoss fóru Bjössi og Guðni Reynir með gimbrarnar hennar Gunnu út að Bjarnastöðum og sóttu hana Karlottu mína til Kolla í Eyvík í leiðinni en það var sko löngu kominn tími á að sækja hana en svona er þetta stundum, allavega en það fór klárlega ekki illa um hana blessaða í vistinni.

18. jan 2012

Afmælisdagurinn hennar Helgu ömmu í dag, hún hefði orðið 97 ára í dag ef hún hefði lifað

Gummi frændi minn hefði líka orðið 17 ára í dag ef hann hefði lifað blessuð sé minning þeirra.

        Þokkalegt veður í morgun og krakkarnir fóru í skólann.  Svo heyrðu þau gangaverðina tala um að það væri spá svo slæmu seinnipartinn að það var nú bara sangjarnt að sveitakrakkarnir færu heim áður en verra verður kæmi svo þau komu heim um hádegið en held að þau hafi komið heim í versta verðrinu þvi svo var orðið þokkalegt um kaffileitið og fínt verður seinnipartinn. 

      Ætlaði annars í bæinn í dag með pappira í dag en veðrið bauð ekki uppá það.

      Nú svo átti ég að fara í Tysabri á morgun en því hefur verið frestað til 31 jan en ég fór semsagt í eitthverja blóðprufu sem átti að segja mér hvort ég væri jákvæð eða neikvæð gagnvart eitthverjum vírus og auðvitað var ég jákvæð sem er neikvætt því þá ér ég í meiri hættu á áð fá heilabólgu heldur en þeir sem eru neikvæðir.    Heilabólga er semsagt ekki mjög spennandi kostur svo það er ekkert víst að ég fái meira Tysabri.  Þá er það þessi nýja pilla sem er verið að bíða eftir en það er ekki búiðað samþykkja hana ennþá hér heima, var nú svo samt í dag að það væri bara vitað um eitt dauðsfall út af henni en sú manneskja dó daginn eftir að hafa fengið lyfið....finnst það kannski ekkert spennandi heldur þannig að ef það verður ekki fyrir valinu þá fer ég kannskí bara á gömlu lyfin aftur og þá ekki Avonenx heldur Copaxone held ég að það heiti, en það eru sprautur.

17. jan 2012

       Skutlaði Þóru á Selfoss eftir hádegið en Sigga og Arnar voru að fara í bæinn svo hún fékk far með þeim.  Fór svo aðeins í Bónus og brunaði svo heim.  Fékk þá flugu í hausinn að reyna að bræða snjóinn aðeins sem er hér á fyrir utan húsið, þetta var ekkert smá mikill klaki en hafðist fyrir rest, Vala frænka mín kom svo og hjálpaði mér.

       Gunni Har kom svo hér við í dag, kýkti í fjárhúsið og svo gaf Guðni Reynir honum kaffi.  Annars bara allt gott, nema veðurspáin á morgun en það er spáð alveg kolvitlauu veðri en sjáum hvernig það verður. 

16. jan 2012

         Rigning í dag og svo kom rok líka en svo lagaðist þetta aðeins undir kvöld.  Annars bara ekkert að frétta. 

15. jan 2012

           Lítið um að vera í dag svosem, þokkalegt verður samt en manndrápshálka hér á hlaðinu og í fjósabrekkunni.  Gunna frá Bjarnastöðum kýkti hér í kaffi, Adam kýkti líka við.  Dóri var í skólanum í gær og í dag eitthvað tengt hrossabrautinni, hann kom svo heim um fjögur leitið og brunaði svo í bæinn að sækja Perlu sína en tók Hjalta Pétur með sér en krakkarnir fóru í bíó og komu svo heim um hálfellefu.  Sigga og Arnar komu svo heim seinnipartinn voru orðin svöng þessar elskur.  Nú svo er hún Þóra okkar hér en hún er hætt að vinna svo henni liggur ekkert á uppá Skaga bara yndislegt.

14. jan 2012

         Ansi strembinn dagur í dag, fór af stað fyrir hádegi á hundasýningu sem er nú ekki mitt uppáhald en á svosem ekki að kvarta í frábærtum félagsskap og sat bara eins og prinsessa og fylgdist með.  Linda og Ásta María sáum um þetta fyrir mig að velju takk fyrir það stelpur.  Byrjaði semsagt að fara raða í bílinn en ég tók Skvísu og Unu með sem fóru báðar í sitthvorn hvolaflokkin, held að þær hafi báða fengið heiðursveðlaun, nú svo var það Undramundur sem stóð sig með stakri prýði alveg  pollrólegur og eins og hann hefði bara aldrei gert annað en að sýna sig hann fékk bláann borða sem er very good, mjög sátt með það, svo var það drottingin hún Tíbrá feita fallega feldlausa :)  hún fékk líka very good þótti aðeins í of góðum holdum og feldlaus en ég var allavega mjög sátt með dómana hennar.  Við semsagt fórum af stað og sóttum svo Hönnu Kötu og Mími en hann fékk líka very good sem við vorum bara rosalega sáttar með.  Takk æðislega fyrir samfylgdina Hanna Kata mín það var bara frábært að fá þig með :)  Ætli ég hafi ekki verið komin heim um hálfníu og þá var brunað yfir til Jonna og Lindu í martarklúbb.  Rosalega gaman, og ég líklega ekki komin heim fyrr en klukkan þrjú í nótt en það var svo rosalega hált að ég varð að keyra hér á milli húsa sem mér finnst nú eiginlega ekki hægt en það var nú bara ófært vegna hálku.
       Við eigum svo að vera með næsta matarklúbb ásamt Árna og Sigrúnu og gott ef það er ekki bara komin dagsetning 25 febrúar sem er bara flott.

13. jan 2012

          Búið að vera frekar leiðinlegt veður í dag rigning fyrripartinn og rok og rigning seinnipartinn, mjög skemmtilegt.

        Við Inga fórum á Selfoss eftir hádegið, ég þurfti að versla smá nú og svo kýktum við líka í Húsasmiðjuna og þar var líka verslað smá fyrir krakkana á Engjó.  Nú ég skutluðist með krökkunum með fullann pall af peningum í endurvinnsluna, þau voru bara nokkuð kát með afraksturinn og flest ákveðin í að nota aurinn í fleiri dósir, þó heyrði ég hugmynd um að nota aurinn í ruslafötu, skúringarfötu og þessháttar en það fékk nú ekki góðar undirtektir, þó svo það hefði nú enst mun lengur en innihald dósanna.  Já og mikið hamingjusamari hópur sem hefið vaknað í fyrramálið, engar tómar dósir út um allt en svona er þetta og hver veit hvað var svosem keypt fyrir aurinn.

12. jan 2012

         Gott veður í dag kalt en ekki neinn vindur að ráði.  Það gekk nú aðeins á afturfótunum í morgun þegar Dóri og Perla fóru í skólann en það sprakk á bílnum en það var brunað með dekkið í viðgerð en Dóri átti ekki að byrja í skólanum fyrr en um ellefu þannig að ég skutlaði Perlu bara í skólann og svo var farið að stússast í bílnum hans Dóra en þetta hafðist nú allt saman.

       Eftir hádegið fórum við Bjössi á rúntinn en við byrjuðum á að taka Gunna Har upp í Bjarnabúð svo var stefnana tekin á Langholtskot að sækja folald sem Gunni átti þar,  síðan var farið að Fossi að sækja tvo kálfa nú og svo brunað með gripina heim, ja nema Gunna sem var skilin eftir í Tungunum.

        Sigga, Arnar, Dóri og Perla komu svo heim uppúr fjögur en það var verið að sækja ýmislegt sem gleymdist í gær, svo brunuðu þau aftur á Selfoss en það er spáð ömurlegu verðri í nótt og á morgun svo það er bara best að litlu krakkarnir verði á Selfossi í nótt, Perla má líka sofa út en Dóri er í fyrsta tíma eins gott að hann skrópi ekki.... en ætli það verði þá nokkur skóli ef veðrið verður eins slæmt og spá verður. 

11. jan 2012

           Bara gott veður í dag, en dálítið kalt, hér var mokað heim í morgun en klárlega ekki hann Helgi því hann veit að það á að moka áleiðis til Jonna og Lindu en þessi snéri bara við út við fjós þannig að Dóri og Perla fóru ekki í skólann.

       Sigga og Arnar komu svo austur í dag það var svo fjölmennt út á Borg en þar voru bleiku stákarnir að keppa í blaki við konurnar hér í sveit, held að þær hafi unnið fyrstu lotu en svo tóku strákarnir og Perla sig á og unnu næstu lotur, en það var klárlega ekki eins létt og sumir áttu von á en ég hafði nú heyrt báðar útgáfur að þeir myndu rúlla þessu upp en aðrir voru nú hálfsmeikir um að þetta yrði nú ekki eins einfalt sem varð nú svo raunin.  Þegar hér var svo komið heim þá var liðinu gefið að éta nú og Sigga og Arnar eru svo bara farin á Selfoss með fulla poka af dóti bara spennandi, hef nú grun um að nú verði húsið eitthvað tekið í geng og málað það sem átti eftir að mála já og annað málað aftur.

       Nú svo var sýningarþjálfun í dag í bænum fyrir hundasýninguna, ég var svo spennt að horfa á blakið að ég sá mér leik á borði og plataði Hönnu Kötu og Hjört til að taka Skvísu með sér, hef nú fulla trú á að það verði ekkert mál með Unu nú og veit að Tíbrá kann þetta alveg nú og svo er það hann Undramundur á eftir að sjá hvernig hann höndlar þetta en Skvísa litla stóð sig bara nokkuð vel, prúð og góð  þrátt fyrir að hafa ekki farið í band áður þannig að þetta ætti að sleppa til.

10. jan 2012

         Bara leiðindarveður hér í allann dag, enginn skóli hjá krökkunum og við sem höfðum fyrir því að senda þau á Selfoss í gær svo þau kæmust örugglega, en uppúr hádeginu þá komu þau heim það var nú frekar blint en þetta slapp alveg til.  Sigga og Arnar eru föst í bænum, en ég reikna nú með að þau komist heim á morgun.

      Annars bara allt gott svona miðað við veður. 

9. jan 2012

         Það var svo ekkert agalegt veður í gær.  Ég fór á Selfoss eftir hádegið þurfti að fara á Sýsluskrifstofuna, aðeins í Krónuna og svo í Frumherja þannig að ég kom ýmislegu í verk í dag.  Dóri og Perla rétt skutust heim eftir skólann og fóru strax aftur á Selfoss þar sem veðurspáin var ekki mjög spennandi.  Sigga og Arnar eru bara enn í bænum enda ekkert ferðaveður.  Nú hér undir kvöld var komin ansi leiðinlegt veður, snjókoma og blint, rafmagnið fór 2x af en vonandi tollir það nú í nótt.   Held reyndar að verðurspáin sé ekkert spennandi á morgun heldur en það er langt síðan það var svona leiðinlegt verður og svona oft, allavega í minningunni en kannski er þetta bara svona á vetri.....nei held nú ekki.

        Nú það fer að styttast í að Hvati og Tintron fari út, í byrjun feb í síðasta langi held ég jafnvel fyrr, það er bara spruning um pláss í flugi. 

8. jan 2012

          Gunni Har og Adam komu hér við í kaffi í dag.  Nú er Dóri kominn með bílpróf og þar sem veðurspáin er afleit á morgun fóru Dóri og Perla með Bjarka og Hjalta á Selfoss uppúr kaffinu, Kjartan Gunnar fór um hádegið og Sigga og Arnar fóru í bæinn um kaffileið líka þannig að nú finnst mér ansi tómlegt í kotinu, bara Guðni Reynir eftir í kotinu með okkur gamla settinu, mér finnst þetta bara alveg ómögulegt en vonandi er þetta nú bara tilfallandi með veðrið þannig að Dóri og Perla verða mikið heima í vetur en Sigga og Arnar verða örugglega mikið á Engjó en það á nú eftir að koma betur í ljós. 

7. jan 2012

            Dóri á afmæli í dag og er orðin 17 ára til hamingju með daginn þinn og bílprófið.

          Hér mættu um 25 manns í afmæliskaffi í dag, bara gaman að því, takk fyrir komuna :)  Nú svo eru Bjössi og Guðni Reynir að fara í nautalifur til tengdó í kvöld en maður er nú svo útbelgdur eftir kaffið að það endist manni í marga daga.

        Annars bara búin að vera rosalega mikil hálka hér í gær og í dag, frekar leiðinlegt en svona er þetta bara. 

6. jan 2012

           Fórum í hið árlega þrettándaboð hjá mömmu og pabba, fengur æðislegann forrétt sem heitir víst púkar á hestbaki, Sigga heyrði þetta eitthvað vitlaust og hélt að þetta væru punkar á hestbaki og vildi nú vera viss um af hverjum þessir pungar væri en svo var nú hægt að útskýra þetta fyrir henni.  Fengum svo hreindýr sem var bara æðislegt og svo ís í eftirrétt rosalega gott allt saman og takk fyrir okkur. 

5. jan 2012

         Fórum í birtingu í morgun að leita að fé í þjóðgarðinum ég svosem var bara inní bíl og beið og ég beið og ég beið....það semsagt fundust ekki nokkrar einustu rollur, frekar fúlt því að sem hefur verið að nást af fé undanfarið lítur orðið ekki nógu vel út og nokkuð ljóst að það sem ekki næst á næstunni drepst líklega sem er bara leiðinlegt.

      Brúney, Kjartan og Siggi kýktu svo við hér í kaffi alltaf gaman að því.  Annars bara allt í rólegheitum. 

4. jan 2012

         Við Bjössi fórum á Selfoss í morgun en hann átti gjarfabréf í hestabúðina og fékk sér úlpu.  Þegar Guðni Reynir kom svo heim um hádegið kom hann með Bjarka og Hjalta með sér heim en það er semsagt æfing á Borg seinnipartinn en Perla, Bjarki og Hjalti tóku sig til hér í dag og byrjuðu á að gera snjóhús en þau kláruðu það nú samt ekki held ég.  Krakkarnir fóru svo öll á æfingu seinnipartinn.

        Á morgun er svo stefnan tekin inná afrétt og í þjóðgarðinn en við Bjössi verðum nú bara í byggð með jeppann og kerru að hirða upp það sem finnst ef eitthvað finnst en einhverjir eru að fara á snjósleðum innúr, vonandi vinnst eitthvað af fé.

       Sigga byrjra svo í skólanum á morgun en Dóri og Perla byrja ekki fyrr en á föstudaginn orðin dálítið spennt að sjá stundaskrárnar þeirra allra, spurning hvernig Sigga hefur þetta svo í vetur og hvar þau verða en það fer jú eftir stundaskránni hennar og veðrinu en ég á nú von á að þau verið mikið á Enjó og svo í bænum þegar það hentar. 

3. jan 2012

          Skaust á Selfoss í dag, þurfti að ná í smá hundafóður í hundana og lýsi í Bjössa.  Laumaðist til að kaupa vínabrauð og snúða svona af því að maður hefur lagt svo mikið af um jólin ;)  það þarf nú  að passa að liðið haldi holdum.

         Annars dreif Perla sig í ræktina í morgun, ótrúleg elja. 

       Sigga og Arnar fóru í bæinn í dag en nú fer skólinn að byrja á fullu hjá henni held að hún byrji 5 jan og Dóri og Perla byrja 6 jan.   Gunni Har kýkti svo við í kaffi, já og í fjárhúsið en held að hann sé að dekra ferhyrntu kindina sína og færa henni brauð ;)

         Nú Gaurinn litli er bara yndislegur og heillar alla uppúr skónum. 

2. jan 2012

           Sá í morgun þegar ég vaknaði að Sigga og Arnar komu heim í nótt.  Skildist á Siggu að færðin á milli Selfoss og Hveragerðis hafi nú ekki verið neitt spennandi en þau komust allavega heim.

        Fór í bæinn í dag að sækja Dóra og Perlu á rútuna en þau eru búin að vera fyrir norðan um áramótin, skildist á Dóra að hann hafi bara verið alsæll þarna fyrir norðan mikið spilað en honum leiðist það nú ekki.  Já og mikið borðað þau komu rúllandi hér heim.   Nú ég eldaði svo bæði folaldafile og nautalund í kvöldmat en það´tókst bara rosalega vel og allir saddir og sælir.  Það styttist svo í næsu átveislu en verður á föstudagskvöldið hjá mömmu og pabba.   Dóri á svo afmæli á laugardaginn og vill fá sína rjómatertu, heitann brauðrétt og ég veit ekki hvað og hvað.  Held að svo verði pása á veisluhöldum fram á þorrablót en nú er komin niðurtalning á þorrablótið, hlakka mikið til.        

1. Jan 2012

Bjössi minn á afmæli í dag orðinn 49 ára til hamingju með daginn elsku kallinn minn :)

           Bara rólegheit í dag,  Adam og Elvar kýktu við í dag.  Heyrði í Siggu í dag og hún er búin að ná sér í eitthvern flensuskít vonandi verður hún fljót að ná sér en hún var orðin slöpp í fyrrakvöld.  Veit ekki alveg hvort Sigga og Arnar koma heim í kvöld eða á morgun en ég reikna með að Dóri og Perla komi heim á morgun.

         Eldaði svo folaldafile í kvöld með piparosasósu svona í tilefni dagsins, ekkert smá sem þetta folaldakjöt er gott.  Nú af Gaurnum er bara allt gott af frétta honum hefur tekist á örskömmum tíma að heilla alla enda bara yndislegur hvolpur.   

                   

[Miðengi] [Kringlumyri] [Gestabók] [Fréttir] [Um okkur] [Kersins kennel] [Hestar/Horse] [Niðjatal Ólafíu] [Sumarhúsafréttir] [Links/Hlekkir] [E-mail]