Kringlumyri
Kringlumýri Hestaleiga
Kerhestar hafa tekið kofann í Kringlumýri á leigu og nú er verið að gera kofann vistlegann.
Við ætlum að leiga kofann út og áhugasamir geta pantað í síma 865-4422

www.kerhestar.is
 

  

Miðengi

20. nóv 2011

           Þá eru menn farnir að huga að næsta sumri og farnir að panta svo ég skora  bara á þá sem eru með dagsetningar klárar að panta sem fyrst. 

23. júlí 2011

Búið að vera heilmikið rennerí í Kringlumýri í júlí og verður áfram eitthvað í ágúst en samt eitthverjir dagar lausir.

17. júní 2011

         Raggi Hinriks lóðsaði hóp inní Kringlumýri í gær og gekk bara vel.  Maggi, Sirrý og fleira fólk úr Hafnarfirðinum fór svo inneftir í dag og Maggi kom við hér eftir að hafa skutlað trússinu inneftir og sagði að kofinn hefði verið svo hreinn og flottur að skurðstofur væru ekki einusinni svona hreinar, gaman að frétta af svona umgengni :) 

13. júní 2011

            Það var svo hringt í mig undir kvöld en þá var hestahópur í vandræðum en skildi þetta nú ekki alveg en allavega fannst mér eins og að hópurinn hefði verið á ferðalagi og klárarnir ekki látið að stórn og endað á Minni Borg en þau voru á leið í Kjósina svo það á að reyna að ná stórn á klárunum og koma þeim í Kringlumýri í nótt :)  Vonandi gengur það vel. 

12. júní 2011

Hópurinn sem ætlaði að koma í Kringlumýri í dag hætti við þar sem þau ætluðu yfir Kjöl en allt ófært þar ennþá

11. júní 2011

             Hér kom hópur heim í Miðengi í gærkvöldi eða eiginlega í nótt og stefnan tekin á Kringlumýri í dag. 

10. júní 2011

        Það var hópur í Kringlumýri í gær, svo er bókað alla helgina í kofann.  Dælan er komin þannig að nú er hægt að dæla vatni en samt sem áður farið sparlega með vatnið :)        

6. júní 2011

        Kofinn í Kringlumýri er laus mikið til á júlí. Er ekki ráð að nýta sér það og fara bara í sleppitúr í júlí þar sem sumarið er ansi seint á ferð hvort sem er og vorið bara gleymdist :(

       Fyrsti hópurinn sem mætti í Kringlumýri í vor (sem við erum nú enn að bíða eftir það er að segja bíðum eftir vorinu) voru krakkar úr Kerhólsskóla en þau ætluðu að vera í tvær nætur.  Nú svo eru næstu tvær helgar nokkuð þétt bókaðar.  

      Fyrir þá sem ekki vita þá er kofinn orðinn ansi fínn, vatnssalerni komið í húsið og rennandi vant en endilega farið sparlega með vatnið :)  Reyndar er dælan víst biluð en vonandi næst að laga hana sem fyrst en á meðan keyrum við bara vatn inneftir.

 


 

Miðengi | Kringlumyri | Gestabók | Fréttir | Um okkur | Kersins kennel | Hestar/Horse | Niðjatal Ólafíu | Sumarhúsafréttir | Links/Hlekkir | E-mail