|
Uppfærsla á börnunum
29.ágúst. 2010
Lítið að frétta af Guðna Reyni en hann er
nýbyrjaður að halda girðingunum við vegina við, þetta er þá á vegum
hreppsins og eða vegagerðarinnar, alveg ágætis vinna. Nú svo fer
sláturtíðin að byrja og að vanda verður Guðni Reynir í réttinni þar.
Hann á svo enn sína Rebekku en þau eru agalega sæt saman ja nema kannski
þegar Chelsea og Man. Utd keppa þá er friðurinn úti
(uppfært 29.ágúst. 2010)
Guðni Reynir heldur enn með Chelsea í ensku
og fylgist enn ekki mikið með boltanum hér heima ja nema kannski
Hvöt en krakkarnir hér í sveitinni hafa verið að reyna að halda úti liði
í Sunnlensku deildinni. Held að áhuginn á búskapnum hafi
frekar aukist heldur en hitt og enn fylgja honum allir þessir hundar
nema Prins junior sem er fluttur til Ameríku. Hann var að vinna í
réttinni í SS í haust og kann vel við sig þar. Nú svo er hann
komin með kærustu hana Rebekku Lind sem er alveg yndisleg stelpa, og
deilir áhuga sínum með Guðna Reyni á skepnunum og fótboltanum þó svo hún
haldi nú með Man.Utd og mig grunar að því verði ekki breytt ;)
(uppfært 1.jan. 2010)
Guðni Reynir er
elstur fæddur 19 mars 1989, hann er með fótboltadellu, heldur
með Chelsea í ensku en fylgist ekki eins mikið með þeim Íslenska. Hann
æfir fótbolta með UMF Hvöt og lætur það duga í bili. Hann hefur
svo afskaplega mikinn áhuga á búskapnum, og alltaf fylgja honum
fjórir til fimm hundar þegar hann er að brasa eitthvað úti, Voði, Glampi, Gutti, Týra
já og Prins junior það má nú ekki minna vera.
Guðni Reynir er búinn að kaupa sér Toyota Hilux og setja
fjárgrind aftaná bílinn og alsæll. Núna
haustið 2008 er hann að vinna í SS á Selfossi og er í réttinni.
(uppfært 7.
okt. 2008)
Sigga
búin að vera heima í sumar að snúast í kringum mömmu sína :) í
kringum hrossin og það sem til fellur. Hún og Dóri fóru til
Ameríku í 2 vikur í sumar og það var algjört æði skilst mér. Nú er
svo skólinn að byrja en Sigga ákvað að reyna við Lögfræðina í HÍ :)
(uppfært
29.ágúst. 2010)
Sigga er enn í FSu og klárar núna
vorið 2010, þá er stefnan tekin á framhaldsnám en hvað það verður og
hvar er ekki ákveðið en eitthvað tengt lögfræði er í myndinni þessa
dagana og klárlega skóli á Íslandi hvort sem það verður nú HÍ eða
Bifröst já eða hver veit hvað. Áhuginn á hestunum er enn til
staðar og var hún hér heima í sumar og sá um hestaleiguna, veit ekki
alveg hvað verður næsta sumar en held að hestaleigan gæti passað vel
(uppfært
1.jan. 2010)
Sigga er fædd 18 maí 1990,
Sigga hefur áhuga á hestum nú og að vera bara til, alltaf að
vinna nú eða að flækjast með vinkonum sínum . Sigga er
enn dálítið óráðin með hvað hún ætlar að læra í framtíðinni en er samt
klár á því að hún ætlar að læra, en hún veit að það er jú málið að læra
eitthvað og þar sem nám liggur vel við hjá henni þá ætti það ekki að
vera vandamál. Sigga stundar nám á Viðskipta og
hagfræðibraut í FSu.
(uppfært 7.
okt 2008)
Dóri byrjaður í
skólanum í Reykholti og er þetta síðasti veturinn hans þar, nú svo tekur
framhaldsskólinn við. Dóri er búinn að vera að vasast í hrossum
hér heima í sumar en ekki getað gert eins mikið og vonir stóðu til þar
sem hrossin eru búin að vera ansi veik hér eins og annarsstaðar en
vonandi fer þetta að lagast.
(uppfært
29.ágúst
. 2010)
Þá er það hann Dóri,
hann er í skólanum í Reykholti og í 9. bekk og kann bara vel við sig,
held að hann kunni allstaðar vel við sig og gengur bara vel. Það
hefur svosem lítið breyst síðan haustið 2008 hann er enn mikill
kvennamaður að eigin sögn allavega, áhuginn á hestum hefur aukist til
muna og nú þorir enginn að gera neitt hér með hross nema fá leifi hjá
Dóra, ég fæ varla orðið að ráða undir hvaða hesta hryssurnar mínar fara.
Hann var að vinna í Hemlu hjá Vigni og Lottu síðasta sumar og var alsæll
á hestbaki allann daginn held ég bara og lærði helling.
(uppfært
1.jan. 2010)
Halldór er yngstur
fæddur 7 janúar 1995. Agalegur grallari, og mikill
kvennamaður skilst mér. Hann hefur mikinn áhuga á hestum og allt sem
hægt er að gera á traktór heillar hann. Dóri getur ekki beðið
eftir að verða fullorðinn. Dóri er í grunnskólanum að Ljósuborg.
(uppfært 7.
okt 2008)
|